ESTA
Click to Apply for ESTA
Select Language:  

ESTA Umsókn Fyrir Íslenska Ríkisborgara

ESTA (Electronic System for Travel Authorization) Umsókn Fyrir Íslenska Ríkisborgara

ESTA Ísland This page is available in the following languages: ENGLISH | ICELANDIC
ESTA Ísland Land: Ísland
ESTA Ísland ESTA Krafist:

Ísland er aðili að rafræna vegabréfskerfinu (Visa Waiver Program) sem gerir íslenskum ríkisborgurum kleift að ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar. Frá og með 12. janúar 2009 varð rafræna kerfið fyrir ferðaheimildir (Electronic System for Travel Authorization) áskilin hluti rafræna vegabréfskerfisins. Rafræn ferðaheimild er umsóknarkerfi fyrir alla farþega frá aðildarlöndum rafræna vegabréfskerfisins, þ.m.t. Ísland. Rafræna vegabréfskerfið hefur einfaldað ferðalög til Bandaríkjanna fyrir milljónir farþega þar sem eingöngu hefur þurft tölvulesanlegt vegabréf. Vegna aukinna örygissráðstafana þurfa farþegar nú að sækja fyrirfram um ESTA ferðaheimild. Sem og áður þarf enn að hafa tölvulesanlegt vegabréf frá aðildarlandi rafræna vegabréfskerfisins. ESTA umsóknarferlið fer fram á netinu og er á vegum Heimavarnarráðs Bandaríkjanna (U.S. Department of Homeland Security).

Ferðaheimildin er ekki vegabréfsáritun. Farþegi frá landi sem tekur ekki þátt í rafræna vegabréfskerfinu skal ekki reyna að sækja um ferðaheimild. Tilgangur ferðaheimildarinnar er að gefa Heimavarnarráði Bandaríkjanna tækifæri á að rannsaka alla farþega frá aðildarlöndum rafræna vegabréfskerfisins áður en þeir ferðast frá sínu heimalandi. Íslenskir farþegar sem ferðast til Bandaríkjanna þurfa að sækja um ferðaheimilid a.m.k. 72 tímum fyrir brottför. Samþykkt ferðaheimild tryggir ekki landgöngu en er forkrafa um að ferðast til Bandaríkjanna með flugi eða skipi.

Mikilvægar upplýsingar um ESTA:

  • ESTA (bandarísk ferðaheimild) er ekki vegabréfsáritun. Hún heimilar þér að fara um borð í flugvél eða skip sem ferðast til Bandaríkjanna.
  • Tilgangur ferðaheimildarinnar er að gefa bandarísku ríkisstjórninni færi á að rannsaka alla farþega frá aðildarlöndum rafræna vegabréfskerfisins áður en þeir ferðast frá sínu heimalandi.
  • Ríkisborgarar þeirra 36 aðildarlanda rafræna vegabréfskerfisins (þ.m.t. Ísland) þurfa að sækja um ferðaheimild áður en lagt er í ferðalag til Bandaríkjanna.
  • Ráðlagt er að sækja um ferðaheimild a.m.k. 72 tímum fyrir brottför.
  • Ef umsókn er hafnað þarf að sækja um B-1 eða B-2 ferðamannaáritun.
  • Samþykkt ferðaheimild tryggir ekki landgöngu í Bandaríkin.
ESTA UMSÓKN


Af hverju ætti ég að sækja um ESTA?

 

Hver þarf að sækja um ESTA?


  • Frá og með 12. janúar 2009 þurfa farþegar frá aðildarlöndum rafræna vegabréfskerfisins að sækja um bandaríska ESTA ferðaheimild til þess að eiga færi á að fá landgöngu í Bandaríkin.
  • ESTA ferðaheimildin gildir í allt að tvö ár og einfalt er að uppfæra hana fyrir frekari heimsóknir.
  • Ekki er ráðlagt að leyfa ferðaskrifstofum eða vefsíðum flugfélaga að skila inn umsókn af þinni hálfu. Þú skalt skila inn eigin umsókn.

  • Allir farþegar sem ætla sér að heimsækja Bandaríkin samkvæmt rafræna vegabréfskerfinu og sem ferðast þangað með flugi eða skipi.
  • Allir farþegar sem eru í gegnumför (transit) um Bandaríkin samkvæmt rafræna vegabréfskerfinu.
  • Börn og ungabörn sem heimsækja eða sem eru í gegnumför samkvæmt rafræna vegabréfskerfinu þurfa einnig að hafa samþykkta ESTA ferðaheimild.


Hér fyrir neðan sést sú síða sem kemur upp á tölvuskjánum þegar ESTA umsóknin þín hefur verið samþykkt.

Sample ESTA Confirmation Page

Upplýsingar um ESTA umsóknir

ESTA Ísland Umsóknarferlið fer fram á vefnum
ESTA Ísland Umsókn tekur minni en fimm mínútur
ESTA Ísland Yfir 99% umsókna samþykktar (heimild: bandaríska ríkisstjórnin)
ESTA Ísland Skyldubundið ferli sem hófst 12. janúar 2009
ESTA Ísland Gildir í allt að tvö ár

ESTA Warning  Athugið! Umsóknir sem fara í gegnum vefsíður þriðju aðila gætu verið í ósamræmi við reglur ESTA. Vertu vakandi fyrir sviksamlegum vefsvæðum sem safna persónuupplýsingum og sem segjast skila inn umsókn af þinni hálfu. Eina leiðin til að vera 100% viss um að umsókn um ferðaheimild hafi verið skilað inn á viðeigandi hátt er að skila inn umsókn sjálf/ur. Farþegar sem hafa ógilda ESTA ferðaheimild verður neitað landgöngu af Toll- og landamæravörðum Bandaríkjanna. Sæktu umsóknarleiðbeiningarnar hér fyrir neðan og skilaðu inn eigin ESTA umsókn í dag.

Sæktu ESTA umsóknarleiðbeiningarnar og leggðu inn umsókn í dag!

HOME  |  APPLICATION  |  FAQ  |  PRIVACY POLICY  |  TERMS and CONDITIONS  |  CONTACT US
ESTA
Legal Disclaimer: ESTA.US is a private information website not affiliated with the United States Government.
© 2010 ESTA APPLICATION SERVICES (www.esta.us) - All Rights Reserved